Beringssund
Beringssund er sund sem afmarkast af Desnjév-höfða (austasta odda Asíu) og Prince of Wales-höfða (vestasta odda Ameríku). Sundið er um 85 km breitt og dýpt þess um 30-50 m. Það tengir Tjúktahaf (Chukchi-haf, hluti Norður-Íshafsins) í norðri og Beringshaf (hluti Kyrrahafsins) í suðri. Sundið er nefnt eftir danska landkönnuðinum Vitus Bering sem fór yfir það árið 1728. Í miðju sundinu eru Diomedes-eyjar, litla og stóra, og eru 4 km á milli þeirra. Litla Diomedes-eyja tilheyrir Alaska og er því hluti af Bandaríkjunum. Á vesturströnd hennar er lítið þorp þar sem búa um 150 manns. Stóra Diomedes-eyja tilheyrir Rússlandi og er óbyggð fyrir utan fámenna herstöð. Landamæri Rússlands og Bandaríkjanna liggja um sundið milli eyjanna og sömuleiðis alþjóðlega daglínan og er því sinn dagurinn á hvorri eyju.
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/16/Bering_Strait.jpeg/220px-Bering_Strait.jpeg)
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)