Rómversku Lundúnir
(Endurbeint frá Rómverska London)
Rómversku Lundúnir (á latínu Londinium) eiga við Lundúnir frá 47 e.Kr., þegar Lundúnaborg var byggð, allt til brotthvarfs Rómverja frá Bretlandi á 5. öld. Rómverjar byggðu upp Lundúnir sem borg eftir innrásina árið 43 e.Kr. sem Kládíus keisari leiddi. Þegar borgin var byggð var hún frekar lítil, einungis 350 ekrur að flatarmáli. Staða Lundúna á rómverskum tímum er ekki klár en borgin var ekki höfuðborg (Colchester í Essex var höfuðborg á þessum tíma).
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e6/London_Wall_fragment.jpg/250px-London_Wall_fragment.jpg)
Rómverjar byggðu borgarvegg Lundúna, sem enn má sjá í dag.