Fara í innihald

Pundsmerki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 10:32 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 10:32 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 15 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q249306)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Pundsmerki (£ eða ) er táknið sem notað er fyrir sterlingspundið, gjaldmiðil Bretlands. Sama táknið er (eða var) notað til að tákna aðra gjaldmiðla sem heita pund eða slíkum nöfnum í öðrum löndum, svo sem írskt pund, Gíbraltarpund, ástralskt pund og ítalska líru. Nokkur lönd sem nota gjaldmiðil sem heitir pund nota ekki þetta tákn, eins og Egyptaland og Líbanon.

Pundsmerkið á rætur að rekja til latneska orðsins libra sem var massaeining (sjá líka greinina um mælieininguna). Þetta orð var oft skammstafað með bókstafnum L og einu eða tveimur strikum og þannig myndaðist táknið.

Pundsmerkið er alltaf skrifað á undan upphæðinni (t.d. £12,000) en ekkert bil er haft á milli merkisins og talnanna.

  • Svar við „Hver er uppruni pundsmerkisins og af hverju er það táknað með £?“ á Vísindavefnum. Sótt 4. september 2012.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.