Fara í innihald

Inverness

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 25. nóvember 2023 kl. 14:35 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. nóvember 2023 kl. 14:35 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Inverness

Inverness (úr gelísku: Inbhir Nis „árósar Ness“) er borg í Skosku hálöndunum og höfuðstaður sveitarfélagsins sem nær yfir hálöndin. Íbúar eru um 48.000 talsins (2020). Bærinn stendur í enda Dalverpisins mikla (Gleann Mòr) þar sem áin Ness rennur út í Moray-fjörð. Bærinn var stofnaður fyrir 6. öld og fékk sitt fyrsta konungsbréf frá Davíð 1. á 12. öld. Makbeð, sem William Shakespeare gerði leikrit um, ríkti í Inverness á 11. öld sem konungur Moray og Ross. Invernesskastali var reistur árið 1836 á stað þar sem margir eldri kastalar höfðu staðið áður.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.