Fara í innihald

Borgarstjóri Reykjavíkur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Borgarstjórar Reykjavíkur)

Borgarstjóri Reykjavíkur er æðsti embættismaður Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri framkvæmir samþykktir borgarstjórnar og er yfirmaður starfsmanna borgarinnar. Hann er oftast valinn úr hópi borgarfulltrúa þó hann geti líka verið ráðinn. Núverandi borgarstjóri er Einar Þorsteinsson og tók hann við embætti 16. janúar 2024.

Tuttugu og þrír hafa gegnt embætti borgarstjóra Reykjavíkur, þar af nítján karlmenn og fjórar konur.

Sögulegt yfirlit

[breyta | breyta frumkóða]
Knud Zimsen, borgarstjóri Reykjavíkur frá 1914 til 1932

Í bæjarstjórnarlögum fyrir Reykjavík sem sett voru árið 1907 var í fyrsta sinn kveðið á um embætti borgarstjóra. Embættið var auglýst árið 1908 og sóttu tveir um stöðuna, þeir Páll Einarsson og Knud Zimsen. Páll var ráðinn til sex ára en að þeim tíma loknum ákvað hann að hætta störfum og Knud Zimsen tók við embættinu. Hann hélt því til ársins 1932. Frá árinu 1935 til 1994 komu allir nema einn af borgarstjórum Reykjavíkur úr röðum Sjálfstæðisflokksins, sem hélt lengi vel hreinum meirihluta í borginni. Í kosningunum 1994 stofnuðu þáverandi félagshyggjuflokkar (Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið, Kvennalistinn og Framsóknarflokkurinn) sameiginlegan framboðslista sem kallaður var Reykjavíkurlistinn undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Reykjavíkurlistinn bauð fram og hélt meirihluta í borginni til ársins 2006 þegar flokkarnir sem mynduðu listann (þá Samfylkingin, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Framsóknarflokkurinn) buðu fram undir eigin merkjum á ný. Nýtt framboð, Besti flokkurinn, sem leiddur var af Jóni Gnarr bauð fram í Sveitarstjórnarkosningunum 2010 og varð stærsti flokkurinn í borgarstjórn í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi 2008. Þá mynduðu borgarfulltrúar flokksins meirihluta ásamt Samfylkingunni og varð Jón Gnarr borgarstjóri. Besti flokkurinn bauð ekki fram aftur í Sveitarstjórnarkosningunum 2014 en þá varð Samfylkingin stærsti flokkurinn í borgarstjórn með fimm borgarfulltrúa og tók Dagur B. Eggertsson við sem borgarstjóri. Fór Samfylkingin fyrir meirihluta ásamt Vinstri hreyfingunni - grænu framboði, Bestaflokknum og Pírötum.

Í kosningum til borgarstjórnar árið 2018 varð Sjálfstæðisflokkurinn á ný stærsti flokkurinn með naumum mun yfir Samfylkginguna. Gamli meirihlutinn frá kosningunum 2014 hélt að mestu leyti í sinni mynd, utan þess að Viðreisn kom í stað Besta flokksins. Eins bættust við þrír nýir flokkar sem ekki höfðu áður setið í borgarstjórn: Miðflokkurinn, Sósíalistaflokkur Íslands og Flokkur fólksins. Nýr meirihluti Reykjavíkurborgar var myndaður af Samfylkingunni, Viðreisn, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og Pírötum en í minnihluta sitja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins.

Starf borgarstjóra felst í tveimur meginhlutverkum, annars vegar að starfa sem framkvæmdarstjóri Reykjavíkurborgar og hins vegar að koma fram sem opinber fulltrúi hennar. Iðulega er borgarstjóri jafnframt pólitískur leiðtogi meirihluta borgarstjórnar. Svo þarf ekki að vera, enda getur borgarstjóri verið ráðinn á faglegum forsendum eða verið pólitískur fulltrúi sem hefur þó ekki sérstakar leiðtogastöðu.

Hann getur tekið sæti á fundum nefndar borgarinnar og hefur þar bæði málfrelsi og tillögurétt. Einnig gegnir hann skyldum sem prókúruhafi borgarsjóðs og undirritar skjöl varðandi kaup og sölu á fasteignum, lántökur og annað sem varðar fjárhagslegar skuldbindingar og ráðstafanir eftir að borgarstjórn hefur samþykkt þær. Borgarstjóri fer líka með eignarhluta Reykjavíkurborgar í svokölluðum B-hluta fyrirtækjum.

Borgarstjórar

[breyta | breyta frumkóða]

Eftirtaldir hafa gegnt embætti borgarstjóra í Reykjavík:

Borgarstjóri Frá Til Flokkur
Páll Einarsson 1908 1914 Óháður
Knud Zimsen 1914 1932 Óháður
Jón Þorláksson 1932 1935 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Pétur Halldórsson 1935 8. október 1940 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Bjarni Benediktsson 8. október 1940 4. febrúar 1947 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Gunnar Thoroddsen 4. febrúar 1947 6. október 1960 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Auður Auðuns 19. nóvember 1959 6. október 1960 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Geir Hallgrímsson 19. nóvember 1959 1. desember 1972 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Birgir Ísleifur Gunnarsson 1. desember 1972 15. ágúst 1978 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Egill Skúli Ingibergsson 15. ágúst 1978 27. maí 1982 Óháður
Davíð Oddsson 27. maí 1982 16. júlí 1991 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Markús Örn Antonsson 16. júlí 1991 17. mars 1994 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Árni Sigfússon 17. mars 1994 13. júní 1994 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 13. júní 1994 1. febrúar 2003 Reykjavíkurlistinn
Þórólfur Árnason 1. febrúar 2003 1. desember 2004 Reykjavíkurlistinn
Steinunn Valdís Óskarsdóttir 1. desember 2004 13. júní 2006 Reykjavíkurlistinn
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 13. júní 2006 16. október 2007 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Dagur B. Eggertsson 16. október 2007 24. janúar 2008 Merki Samfylkingarinnar Samfylkingin
Ólafur F. Magnússon 24. janúar 2008 21. ágúst 2008 Frjálslyndi flokkurinn
Hanna Birna Kristjánsdóttir 21. ágúst 2008 15. júní 2010 Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn
Jón Gnarr 15. júní 2010 16. júní 2014 Besti flokkurinn
Dagur B. Eggertsson 16. júní 2014 16. janúar 2024 Merki Samfylkingarinnar Samfylkingin
Einar Þorsteinsson 16. janúar 2024 Enn í embætti Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn