Colorado Springs
Útlit
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/45/CC_COSPRINGS.jpg/220px-CC_COSPRINGS.jpg)
Colorado Springs er borg og sveitarfélag í miðhluta Colorado-fylkis Bandaríkjanna. Borgin er um 100 km sunnan við Denver og er í 1839 metra hæð. Íbúar eru tæplega hálf milljón (2017) og rúmlega 700 þúsund á stórborgarsvæðinu sem gerir hana næststærstu borg fylkisins. Klettafjöll eru í norðri og eru rætur fjallsins Pikes Peak (4.302 m) við borgina.
Tugir íþróttasambanda eru með höfuðstöðvar í Colorado Springs og er Ólympíunefndin bandaríska þar á meðal. Hátækni- og heriðnaður eru meðal mikilvægra atvinnugreina.
Heimild[breyta | breyta frumkóða]
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Colorado Springs.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Colorado Springs, Colorado“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 25. mars. 2019.