Maksím Gorkíj
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1d/1900_yasnaya_polyana-gorky_and_tolstoy.jpg/220px-1900_yasnaya_polyana-gorky_and_tolstoy.jpg)
Aleksej Maksímovítsj Peshkov (á rússnesku Алексе́й Макси́мович Пешко́в) (28. mars 1868 - 18. júní 1936), þekktur undir nafninu Maksím Gorkíj (á rússnesku Макси́м Го́рький) var rússneskur og sovétskur rithöfundur og upphafsmaður þjóðfélagsraunsæis í rússneskum bókmenntum og baráttumaður. Hann var fimm sinnum tilnefndur til Nóbelsverðlauna í bókmenntum. Nokkur rita Maksím Gorkíj hafa komið út á íslensku, þar á meðal skáldsagan Móðirin sem var fyrsta verkið sem bókaútgáfan Mál og Menning gaf út, það var árið 1936. Einnig sjálfsævisaga í þremur bindum (Barnæska mín, Hjá vandalausum og Háskólar mínir). Kjartan Ólafsson þýddi sjálfævisöguna. Einnig hafa leikrit Gorkíjs verið þýtt og flutt í Þjóðleikhúsinu og gefin út verk eins Mannveran sem er rúmlega hundað ára ljóðabálkur um lífskraft mannlegrar tilvistar sem Maksím Gorkíj samdi í aðdraganda rússnesku byltingarinnar.