Mount Saint Elias
Útlit
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4b/Mt_Saint_Elias%2C_South_Central_Alaska.jpg/220px-Mt_Saint_Elias%2C_South_Central_Alaska.jpg)
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/16/Mount_Saint_Elias_%283%29.jpg/220px-Mount_Saint_Elias_%283%29.jpg)
Mount Saint Elias er annað hæsta fjall, bæði Kanada og Bandaríkjanna; 5489 metrar yfir sjávarmáli. Það liggur í samnefndum fjallgarði á landamærum Alaska og Júkon og er 40 kílómetrum suðvestur af Mount Logan, hæsta fjalli Kanada. Þjóðgarðar eru ennfremur sitt hvorum megin við fjallið.
Saint Elias-fjall var fyrst klifið af Ítala árið 1897; prins Luigi Amadeo di Savoia. Fyrsta veturganga á toppinn var árið 1996. Fjallið þykir erfitt til klifurs.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Saint Elias-fjöll
- Wrangell–St. Elias-þjóðgarðurinn og verndarsvæði (Alaska)
- Kluane-þjóðgarðurinn og verndarsvæði (Júkon)
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Mount Saint Elias.
Fyrirmynd greinarinnar var „Mount Saint Elias“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. mars 2018.