Fara í innihald

Spjall:Listi yfir íslenskar kvikmyndir/Safn 1

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu


Safn 1


Bar listann saman við [1] sem nær yfir tímabilið 1962-2004. Þar sem þeim bar ekki saman reyndist þessi síðari réttari, svo ég breytti í öllum tilvikum eftir honum. --Akigka 13:35, 3 mar 2005 (UTC)

Það er víst enginn svo gamall hér að hann muni eftir "double-feature" sem mig minnir að hafi heitið Breiðafjarðareyjar/Þrymskviða og var sýnd í Regnboganum um 1980? Þrymskviða þessi mun hafa verið fyrsta íslenska teiknimyndin, en mér tekst ekki að finna skapaðan hlut um hana á netinu. --Akigka 14:05, 3 mar 2005 (UTC)

Upplýsingar sem ég fékk frá Kvikmyndasafninu: Varðandi fyrirspurn, þá er Þrymskviða teiknimynd eftir Sigurð Örn Brynjólfsson. Þrymskviða er varðveitt á Kvikmyndasafni Íslands Breiðafjarðareyjar er mynd eftir Óla Örn Andreasson. er ekki til á Kvikmyndasafni Íslands.--Steinninn 18:17, 17 nóvember 2006 (UTC)

Ég tók eftir að það vantaði Hlemmur á listann og það er linkur á hana hjá Bergvík http://bergvik.is/?prodcat=43 Einnig vantar Skuggabörn sem var sýnd á rúv en ekki gefin út svo ég viti til. Hún var leikstýrð af Reyni Traustasyni og Þórhalli Gunnarssyni. Hún kom út 2006 eftir því sem ég kemst næst. Svo er spurning með allar fræðslumyndir um Ísland sem eru til sölu hjá Bergvík en þær geturu séð á síðunni undir http://bergvik.is/?prodcat=32 og http://bergvik.is/?prodcat=26 --Marri 22:02, 17 júní 2007 (UTC+2)

Þú ættir að kíkja á Listi yfir íslenskar heimildamyndir. --Akigka 20:15, 17 júní 2007 (UTC)

Sweety Barrett

Bara svo það komi fram þá er kvikmyndin Aulabárður frá 1998 sú sama og írska kvikmyndin The Tale of Sweety Barrett eftir Stephen Bradley. Það eina sem er „íslenskt“ við þessa mynd er að Íslenska kvikmyndasamsteypan var meðframleiðandi að henni. Spurningin er hvort hún á heima á þessum lista fyrir það eitt? --Akigka 11:03, 18 janúar 2007 (UTC)


Ísland sem meðframleiðandi

Það kom upp stutt umræða um hvort Aulabárður eigi að vera með á þessum lista. Mig langar til að benda á fleir myndir sem eru meðframleiddar af íslandi og eru ekki á listanum: DenBrysomme mannen, Disarm, Den Goda viljan, Guy X, Jargo, Jerusalem, Krigerens hjerte, Nickel Mountain, No Such Thing, Omfavn mig måne, The Prodigal Son, Stormy Weather og Tsatsiki, morsan och polisen. Ég gerði mér nú ekki grein fyrir hvað þessi listi var langur. En ég gerði hann alveg eftir minni með imdb leit. Svo það gæti verið að eitthvað af þessum myndum sé á listanum. En það mætti huga að því að búa til nýjann lista með þessum myndum og Aulabárður. Hvernig hljómar Listi yfir kvikmyndir sem Ísland meðframleiddi? --Steinninn 11:32, 11 febrúar 2007 (UTC)

Eða Listi yfir erlendar kvikmyndir sem íslensk kvikmyndafyrirtæki tóku þátt í framleiðslu á (Ísland getur jú ekki talist vera framleiðandi)? Svolítið óþjált, og spurning hvort sé ástæða til að vera með slíkan lista yfirhöfuð. Hins vegar er alltaf dálítið vafaatriði hvenær kvikmynd (sem byggir alltaf á flóknu framleiðsluferli) telst vera „íslensk“. Mér finnst að Sweety Barrett ætti ekki að vera á þessum lista. --Akigka 20:55, 11 febrúar 2007 (UTC)
Ætti þá að taka út Fullorðið fólk, þar sem hún var meðframleidd af Zik Zak? http://steinninn.is/biomyndir/voksne_mennesker.htm#kredit Ég er nú ekki viss um að ég vilji missa hana. Hvar á að setja mörkin? --Steinninn 17:32, 12 febrúar 2007 (UTC)
Það er mynd eftir íslenskan leikstjóra, alveg eins og Skroppið til himna þannig að mér finnst þær alveg mega vera á listanum. --Akigka 20:20, 12 febrúar 2007 (UTC)
Heyrðu, ég skellti þessu bara neðst á greinina. Ég verð nú að segja að ég er orðinn bara ansi ánægður með þennann lista. Vantar bara örfá plagöt og þá er þetta komið. --Steinninn 21:46, 12 febrúar 2007 (UTC)

Kvikmyndir án leikstjóra

Ég hef unnið hart að því að hafa allar kvikmyndirnar með plakati, eða allavega skjáskoti til að sína framm á að hún sé í raun til. Núna eru bara örfáar eftir. Og það sem veldur mér mestum spurningum er Konunglegt bros, Á sjó og Morgunn lífsins. Það vantar ekki aðeins plakat, heldur líka leikstjórann, og því aðeins nafnið og ár vitað. Ef enginn getur komið með sönnun fyrir því að þessar myndir hafi nokkurtíma verið frumsýndar þá tek ég þær einfaldlega af listanum. --Steinninn 23:22, 8 apríl 2007 (UTC)

Fjarlægði kvikmyndina Fögur er hlíðin því hún hafði engann leikstjóra. Aðrar kvikmyndir sem ég hef efasemdir um eru:
  • Hadda Padda - dönsk framleiðsla
  • Hús í svefni - dönsk framleiðsla
  • Lýðveldisstofnunin 1944 - heimildamynd
  • Salka Valka - dönsk framleiðsla
  • Morgun lífsins
  • Rauða skikkjan - dönsk framleiðsla
  • Brekkukotsannáll - sjónvarpsmynd
  • Veiðiferðin, líklega sjónvarpsmynd
  • Reykjavík - Reykjavík, líklega stuttmynd.

En þetta eru allt aðeins vangaveltur. --Steinninn 05:51, 23 apríl 2007 (UTC)

Færa?

Er ástæða til að færa síðuna á [[Listi yfir leiknar íslenskar kvikmyndir í fullri lengd]]. Upphaflega voru gamlar stuttmyndir teknar með en ég færði þær yfir á sér lista yfir íslenskar stuttmyndir. Einnig voru með heimildarmyndir, en þær hafa einnig vengið sér lista. Og þessvegna er ég að velta fyrir mér hvort best væri að umorða titilinn á listanum. --Steinninn 19:46, 29 júlí 2007 (UTC)

Já það er líklega best. --20:34, 29 júlí 2007 (UTC)
Það er hrikalega langur og flókinn titill á grein. Býst maður ekki við því þegar maður sér "listi yfir íslenskar kvikmyndir" að á þeim lista séu leiknar íslenskar kvikmyndir í fullri lengd? --Akigka 20:47, 29 júlí 2007 (UTC)

Tengill á IMDb

Ég ætti auðvita að vera en:Wikipedia:Be boldBold en ég er ekki viss um hvernig best er að hafa þetta. Mér datt í hug að hafa efst Tenglar og niðri tengla á borð við IMDb. En ef þetta á að vera gæðagrein, þá ættum við eitthverstaðar að setja tengil á IMDb greinina. Þá dettur mér í hug að hafa 'IMDb efst og svo tenglana á borð við Tengill niður, en þegar fólk er komið langt niður er óvíst að það viti hvaða tengill þetta er, því útskýringin er lengst uppi. Eitthverjar hugmyndir? --Steinninn 23:08, 30 júlí 2007 (UTC)

Jæja, ég bætti þessu bara eitthvernvegin við. Hugsanlega set ég líka inn Wikiquote tengla og annað tilfallandi þegar nóg er til af þeim. --Steinninn 00:31, 7 ágúst 2007 (UTC)

Aukaflokkar

Það mætti alveg vera eitthvað annað þarna- bara einhverjar hugmyndir:

  • Lita flokkana eftir...
    ...framleiðslustað (ég hef tekið eftir að margar myndirnar eru ekki alíslenskar)
    ...tegund? (spennumynd, gamanmynd, safnfræðileg mynd?)
  • Gefa til kynna ef ákveðin mynd hefur unnið verðlaun?
  • Skipta upp milli áratuga?
  • Gefa upp lengd?
  • Gefa upp nokkra af aðalleikurunum?

... dettur ekki meira í hug, en þetta eru bara hugmyndir. Endilega komið með athugasemdir. =) --Baldur Blöndal 01:36, 31 júlí 2007 (UTC)

Ef við förum út í svona hluti þá gæti verið að taflan verði of stór fyrir 800x600 skjástærð. Er hægt að bæta því við og hafa svona sýna takka á því. Einnig er ekki til upplýsingar um lengd allra myndanna, svo það gæti orðið erfit að hafa hann „tæmandi“. Ef við förum að skipta listanum upp eftir áratugum þá virkar wikisort ekki nógu vel, Þá væri til dæmis erfit að raða þeim eftir leikstjóra. --Steinninn 16:34, 31 júlí 2007 (UTC)
Já satt, hafði ekki hugsað út í það. Feedback FTW --Baldur Blöndal 16:36, 31 júlí 2007 (UTC)
Mér líst samt mæta vel á að bæta við tegund, lengd og aðalleikurum ef það er hægt að fela það og sýna að vild. Sjáðu til dæmis {{Evrópa}}, reyndar er það falið upp og niður, en vil viljum fela þetta frá hægri til vinstri. --Steinninn 16:45, 31 júlí 2007 (UTC)
Það er nú ekki allklikkuð hugmynd. Heldurðu að þú getir reddað því? --01:01, 7 ágúst 2007 (UTC)
Ég fór að lesa um gæðalista á en: og þar var mælt með að stórar töflur (eins og þessi) sé skipt niður til að auðvelda leiðréttingar. Það var mjög erfit að finna eina mynd frá 1995 til að leiðrétta. Spurning hvort við ættum að skipta þessu aftur niður, það er, á fimm ára fresti. Kannski ekki. --Steinninn 13:38, 20 ágúst 2007 (UTC)

Hvíti víkingurinn

Ein spurning: Af hverju var Hvíti víkingurinn tekinn út? --Akigka 14:14, 20 ágúst 2007 (UTC)

Út af framleiðslulandinu - eg skil... :) --Akigka 14:14, 20 ágúst 2007 (UTC)