Trúboðastelling
Útlit
![](http://178.128.105.246/cars-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b8/Wiki-missionary.png/220px-Wiki-missionary.png)
Trúboðastelling er kynlífsstelling við samfarir og er oftast haft um það þegar karl liggur ofan á konunni. Konan liggur á bakinu og karlmaðurinn liggur ofan á konunni, milli fóta hennar. Trúboðastellingin er ein algengasta stelling fólks sem stundar kynlíf.
Halldór Laxness lætur eina kvenpersónuna í Kristnihald undir Jökli segja: Ég veit ekki betur en ég hafi haft hann milli hnjákollanna lúngann úr nóttinni. Þetta er lýsandi dæmi um trúboðastellinguna frá sjónarhóli konu.