Gluggakerfi
Útlit
![]() |
Lagt hefur verið til að þessi grein verði sameinuð við Skjáborðsumhverfi. Hægt er að ræða þessa tillögu á spjallsíðu greinarinnar. |
![](http://178.128.105.246/content-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6b/Gem_11_Desktop.png/220px-Gem_11_Desktop.png)
Gluggakerfi eða gluggaumhverfi er hluti myndræns viðmóts, sérstaklega í skjáborðsumhverfi, sem styður við útfærslu gluggastjóra og myndar grunnstuðning við annan vélbúnað á borð við skjákort, mýs, teiknibretti og lyklaborð. Í sumum tilvikum eru gluggakerfin samfelldur hluti af stýrikerfinu og ekki skýr greinarmunur á því og öðrum stýrikerfishlutum. Dæmi um slíka samfellu er í Windows Vista þar sem gluggakerfið er innifalið í gluggastjóranum Desktop Window Manager. Dæmi um aðskilið gluggakerfi er Quartz Compositor í Mac OS X og X-gluggakerfið.