Vendsyssel-Thy
Útlit
![](http://178.128.105.246/content-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9e/Vendsyssel_2_lng_n_ubt.png/220px-Vendsyssel_2_lng_n_ubt.png)
![](http://178.128.105.246/content-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/5c/Skagen_aka_the_skaw_northmost_point_of_denmark_6th_may_2006.jpg/220px-Skagen_aka_the_skaw_northmost_point_of_denmark_6th_may_2006.jpg)
Vendsyssel-Thy (Vendilsýslu-Thy), einnig þekkt sem Nørrejyske Ø (Norðurjóska eyjan) og Jylland nord for Limfjorden (Jótland norður af Limafirði), er eyja sem er nyrsti hluti af Norður-Jótlandi í Danmörku. Svæðið er skilgreint sem hluti Jótlands þó Limafjörður aðskilji Jótlandsskagann frá því. Eyjan er stærsta eyja Danmerkur utan Sjálands og er 4685 ferkílómetrar að stærð.
Svæðið er þrískipt: Thy er í vestri, Hanherred í miðju og Vendsyssel í austri og norðri. Frá 1200 til um 1825 var tengdist svæðið Jótlandi um sandeiðið Agger Tange. Íbúar eru tæplega 300.000 (2014).
Hirtshals, Skagen, Hanstholm, Thisted og Frederikshavn eru meðal þéttbýlisstaða á svæðinu.