William Kidd
Útlit
![](http://178.128.105.246/content-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/50/William_Kidd.jpg/220px-William_Kidd.jpg)
William Kidd (22. janúar 1645 – 23. maí 1701) var skoskur skipstjóri og kapari sem var dæmdur fyrir sjórán og hengdur. Kidd leit sjálfur ekki á sig sem sjóræningja og fékk áfall þegar hann frétti af ásökunum á hendur sér. Sumir sagnfræðingar hafa síðan talið að dómurinn hafi verið ranglátur og sögur af sjóránum Kidds stórlega ýktar. Sögur um að hann hefði falið fjársjóð á Gardiners Island í New York-fylki áttu stóran hlut í að halda nafni hans á lofti.