Anne Bancroft
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0f/Anne_Bancroft_Chrysler_Theatre_1964.jpg/220px-Anne_Bancroft_Chrysler_Theatre_1964.jpg)
Anne Bancroft (Anna Maria Louisa Italiano - 17. september 1931 – 6. júní 2005) var bandarísk leikkona. Hún lærði leiklist í American Academy of Dramatic Arts og síðan stanislavskíaðferðina í Actors Studio hjá Lee Strasberg. Eftir nokkur aukahlutverk í kvikmyndum á 6. áratug 20. aldar fékk hún Óskarsverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir myndina Kraftaverkið: Sagan af Helen Keller (The Miracle Worker - 1962). Þekktasta hlutverk hennar er þó titilhlutverkið í myndinni Frú Robinson (The Graduate) frá 1967. Hún hlaut síðar tilnefningar til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sín í Á krossgötum (Turning Point - 1977) þar sem þær Shirley MacLaine voru báðar tilnefndar í flokknum „besta leikkona í aðalhlutverki“ og sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk abbadísarinnar í Agnes barn guðs (Agnes of God - 1985). Seinni eiginmaður hennar var leikstjórinn Mel Brooks en þau giftust árið 1964. Hún lék í kvikmynd David Lynch, Fílamaðurinn (The Elephant Man) sem Brooks framleiddi árið 1980 og í tveimur myndum sem hann leikstýrði, Að vera eða vera ekki (To Be or Not to Be - 1983) og Drakúla: Dauður og í góðum gír (Dracula: Dead and Loving It - 1995).
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)