Christian Eriksen
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/79/Eriksen20162%28cropped%29.jpg/220px-Eriksen20162%28cropped%29.jpg)
Christian Dannemann Eriksen (fæddur 14. febrúar 1992 í Middelfart, Danmörku.) er danskur knattspyrnumaður sem spilar sem framsækinn miðherji með Manchester United og danska landsliðinu. Hann þykir góður í föstum leikatriðum.
Félagslið
[breyta | breyta frumkóða]Eriksen spilaði með ungmennaliðum Middelfart og Odense Boldklub í Danmörku áður en hann fór til Ajax árið 2008. Árið 2010 fékk hann sæti í aðalliði félagsins. Hann vann efstu deildina Eredivisie með Ajax þrisvar; 2011, 2012 og 2013. Árið 2011 var hann kosinn leikmaður ársins í Hollandi og kosinn besti danski leikmaður ársins af dönskum álitsgjöfum.
Eriksen hélt til Tottenham á Englandi sumarið 2013. Hann varð sitt fyrsta tímabil leikmaður ársins hjá félaginu. Árið 2020 hélt hann til Inter Milan á Ítalíu. Hann vann Serie A titil með Inter tímabilið 2020-2021.
Hálfu ári eftir að Eriksen fékk hjartastopp hélt hann til Brentford FC á Englandi en reglur á Ítalíu meinuðu honum að spila með gangráð.
Sumarið 2022 gekk hann til liðs við Manchester United.
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]Eriksen hóf frumraun sína með landsliðinu árið 2010 og var yngsti landsliðsmaðurinn á HM í Suður-Afríku. Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark á Laugardalsvelli gegn Íslandi árið 2011.
Eriksen hneig niður í miðjum leik gegn Finnlandi á EM 2021. Hann fékk hjartaáfall og var endurlífgaður.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
- Fyrirmynd greinarinnar var „Christian Eriksen“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 28. feb. 2018.