Eikynhneigð
Útlit
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9e/Asexual_Pride_Flag.svg/220px-Asexual_Pride_Flag.svg.png)
Eikynhneigð er hugtak sem vísar til þess að laðast aldrei eða nær aldrei kynferðislega að öðru fólki. Sumt eikynhneigt fólk hefur kynhvöt en hefur ekki áhuga á að fullnægja henni með öðru fólki. Annað eikynhneigt fólk hefur litla eða enga kynhvöt. Sumt eikynhneigt fólk hefur eingöngu áhuga á rómantískum samböndum og/eða ókynferðislegri snertingu (til dæmis faðmlögum og kúri) með öðru fólki. Fólk sem hefur ekki áhuga á rómantískum samböndum telst eirómantískt.[1]
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Eikynhneigð“. Hinsegin frá Ö til A. Sótt 11. apríl 2019.