Ermland-Masúría (hérað)
Útlit
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/43/Warminsko-mazurskie_%28EE%2CE_NN%2CN%29.png/200px-Warminsko-mazurskie_%28EE%2CE_NN%2CN%29.png)
Ermland-Masúría (pólska: województwo warmińsko-mazurskie) er hérað í Norður-Póllandi. Það var stofnað þann 1. janúar 1999 við sameiningu nokkurra eldri héraða. Stærsta borgin í héraðinu og höfuðborg þess er Olsztyn. Árið 2019 voru íbúar héraðsins 1.425.967 samtals. Flatarmál héraðsins er 24.192 ferkílómetrar.