Gjóska
Útlit
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e8/Pumice_santorini.jpg/220px-Pumice_santorini.jpg)
Gjóska (gríska og eldra heiti á íslensku: tefra) er samheiti um loftborin, föst gosefni, sem þeyst hafa upp úr eldgíg, storknað að hluta til eða fullu á fluginu og fallið til jarðar.
Gjóska skiptist eftir kornastærð í gjall, vikur og ösku. Hún er blöðrótt og létt í sér og getur flotið tímabundið á vatni (uns hún verður vatnsósa).
Jarðfræðingar nota gjósku í jarðvegslögum til að geta sér til um hegðun fyrri eldgosa.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Sigurður Þórarinsson bað Vilmund Jónsson landlækni að smíða íslenskt orð í stað gríska orðsins tefra sem samheiti yfir eldfjallaösku, vikur og gjall. Orðið kom fyrst út á prenti árið 1968 í tímaritinu Náttúrufræðingnum.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- „Er til steinn sem flýtur?“. Vísindavefurinn.
- „Gjóskurannsóknir“. Sótt 25. nóvember 2005.
- „Orðabók Háskólans“. Sótt 25. nóvember 2005.
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- Stjörnufræðivefurinn: Gjóska Geymt 22 júlí 2011 í Wayback Machine
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Gjóska.