Fara í innihald

Kortrijk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skjaldarmerki Fáni
Upplýsingar
Hérað: Vestur-Flæmingjaland
Flatarmál: 80,02 km²
Mannfjöldi: 75.633 (1. janúar 2012)
Þéttleiki byggðar: 935,61/km²
Vefsíða: [1]
Borgarmynd

Kortrijk (franska: Courtrai) er borg í Belgíu. Hún er jafnframt höfuðborg og stærsta borgin í flæmska héraðinu Vestur-Flæmingjalandi. Íbúar eru 75 þúsund. Íbúarnir eru hollenskumælandi. Nokkrar byggingar borgarinnar eru á heimsminjaskrá UNESCO.

Lega og lýsing

[breyta | breyta frumkóða]
Broeltowers

Kortrijk liggur við ána Leie norðarlega í Belgíu en syðst í héraðinu Vestur-Flæmingjaland. Næstu stærri borgir eru Gent (42 km), Lille (25 km) og Brugge . Miðborgin afmarkast við ána Leie og er nánast hringlaga.

Byggingar og kennileiti

[breyta | breyta frumkóða]

Miðborg Kortrijk er í heild sinni á heimsminjaskrá UNESCO, sökum gamalla og sögufrægra bygginga. Miðborgin afmarkast af ánni Leie sem hringum í kringum hana. Einnig eru talsvert mörg síki í miðborginni.

  • Frúarkirkjan er gotnesk kirkja í borginni.
  • Klukkuturninn á aðalmarkaðstorginu er eitt helsta kennileiti borgarinnar.
  • Gamla ráðhúsið í Kortrijk er eitt elsta ráðhús Niðurlanda sem enn stendur. Húsið er enn notað sem ráðhús í dag.

Kortrijk viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:

  • Wuxi, China, síðan 2007