Norræna menningargáttin
Útlit
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6d/NordenFlag.jpg/270px-NordenFlag.jpg)
Norræna menningargáttin (Kulturkontakt Nord) er menningarstofnun, hverrar starfsvettvangur eru Norðurlöndin í heild.
Stofnunin vinnum að eflingu norrænnar samvinnu í menningarmálum, innan Norðurlanda sem og á alþjóðavettvangi. Henni er ætlað að skapa grundvöll til menningarmóta af bæði efnislegum og stafrænum toga.
Stofnunin hefur umsýslu með þremur norrænum styrkjaáætlunum: Menningar- og listaáætlun, Ferða- og dvalarstyrkjaáætlun fyrir menningarstarfsemi á Norður- og Eystrasaltslöndum og Barna- og ungmennaáætlun NORDBUK.
Á vegum stofnunarinnar er rekin menningarmiðstöð og bókasafn í miðborg Helsinki í Finnlandi til uppfræðslu um Norðurlöndin og norræna menningu. Norræna menningargáttin er undirstofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vefsíða Norrænu menningargáttarinnar Geymt 8 október 2014 í Wayback Machine (á íslensku)
- Um Norrænu menningargáttina á Norden.org[óvirkur tengill] (á íslensku)