Suðurfiskurinn
Útlit
(Endurbeint frá Piscis Austrinus)
![](http://178.128.105.246/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6a/Piscis_Austrinus_IAU.svg/220px-Piscis_Austrinus_IAU.svg.png)
Suðurfiskurinn (latína: Piscis Austrinus) er stjörnumerki á suðurhimni. Þetta stjörnumerki hefur verið þekkt frá því í fornöld, en nútímastjörnumerkið Hegrinn var áður sporður fisksins. Bjartasta stjarna stjörnumerkisins er Fomalhaut.