Fara í innihald

Stilbít

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Stilbít er margbreytilegt að útliti.

Stilbít myndar frekar plötulaga kristala er vaxa út í horn til enda. Það kemur fyrir sem þyrping af jafnhliða sexhyrndum kristölum. Stilbít er mjólkurhvítt en líka glær,hálfglær og líka lituð afbrigði sem geta verið rauðbrún eða grænlit. Það er bæði með glergljáa og skelplötugljáa. Eru 1-2 cm langir en geta verið allt að 5-10 cm á lengd.

  • Efnasamsetning: NaCa2Al5Si13O36 • 14H2O
  • Kristalgerð: mónóklín, rombísk
  • Harka: 3½-4
  • Eðlisþyngd: 2,12-2,21
  • Kleyfni: góð

Útbreiðsla

[breyta | breyta frumkóða]

Algengust zeólíta. Finnst í holufylltu basalti. Á Íslandi er það einnig að finna í þóleiíti neðarlega í blágrýtisfjöllunum á Austfjörðum.

  • Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2